Reglugerðasafn stjórnarráðsins
Reglugerðasafn stjórnarráðsins á XML+HTML formi með fullri breytingasögu, og áhrifum breyingagreglugerða felldum inn í texta viðkomandi stofnreglugerðar.
ATH: Þetta er bara proof-of-concept högun. Form XML skjalanna mun taka gagngerum breytingum.
Form breytingasögunnar
Í hvert skipti sem skrifað er í breytingasöguna eru notuð stöðluð skilaboð á eftirfarandi formi:
Stofnreglugerð gefin út:
Ný reglugerð: 866/2017 – Reglugerð um för yfir landamæri.
Vandræðaleg innsláttarmistök leiðrétt stuttu eftir útgáfu:
Leiðrétting á: 866/2017
Breytingareglugerð gefin út:
Ný reglugerð: 586/2020 – Reglugerð um breytingu á reglugerð um för yfir landamæri, nr. 866/2017.
Uppfærsla á texta stofnreglugerðarinnar sem er breytt (sett á branch að nafni
ahrif/2020-06-15/568-2020
):
Áhrif: 586/2020 (tekur gildi: 2020-06-15)
Daginn sem breytingareglugerð tekur gildi (oftast samdægurs) er áhrifa-branch hennar fellt inn (e. merged) á aðal-branchið:
Gildistaka: 586/2020
Ath að ef Stofnreglugerð ógildir aðrar reglugerðir, þá verður til
samsvarandi "áhrifa" breyting á ahrif/YYYY-MM-DD/xxx-yyyy
branchi og í
framhaldi af því "gildistöku" innfelling (merge) daginn sem stofnreglugerðin
tekur gildi.
Ath 2: Ef breytingareglugerð tekur gildi í tveimur eða fleiri skrefum,
þarf að útbúa aðskilin áhrifa-brönch – ahrif/YYYY-MM-DD/xxx-yyyy-a
,
ahrif/YYYY-MM-DD/xxx-yyyy-b
, ahrif/YYYY-MM-DD/xxx-yyyy-c
Tæknilegar breytingar sem snúa ekki að útgáfu reglugerðanna:
Admin: Uppfæra upplýsingar í README.md
Dagsetningar fyrir 2. janúar 1970
Tæknilegar ástæður valda því að elstu mögulegu dagsetningarnar eru 1. janúar 1970.
Því eru öllum dagsetningum á bilinu frá byrjun árs 1800 til og með 1. janúar 1970 varpað niður á 1. janúar 1970.
Fyrir hverja dagsetningu á þessu tímabili er reiknaður fjöldi heilla almanaksdaga frá 1. janúar 1800 og dagsetningin táknuð með sama fjölda heilla sekúndna frá miðnætti 1. janúar 1970.
Tímakóðinn 1970-01-01T00:00:41
táknar þannig "11. febrúar 1800", og kóðinn
1970-01-01T14:39:22
táknar "17. júní 1945"
Tímabilið frá og með 1970-01-01T17:14:52
fram að miðnætti þann dag er ekkert
notað.